Flutt
var orðin pínu þreytt á að komast ekki inn á siðuna mína ;)
Loksins er hægt að fara í sturtu á heimilinu. Við heimilisfólkið höfum þurft að gera okkur að góðu að baða okkur í hálfónýtu baðkari þar sem vatnið rennur í dropatali....maður þarf semsagt að grípa dropana til að þvo sér.
Þannig að það var þvílík hamingjustund í gær þegar nýja sturtan frá sturta.is var tengd. Það mátti minnstu muna að slegist yrði um hver fengi að fara fyrstur.....en allt fór þetta þó vel fram og Alex fékk heiðurinn af því að vígja gripinn. Hann var reyndar svo spenntur að það þurfti að reka hann úr sturtunni til að klára að færa hana upp að veggnum :).
Húsmóðirinn ákvað síðan að prufa gripinn í gærkvöldi og jú jú hún virkaði bara ansi fínt fyrir utan smá árás frá nuddstútum......þarf kannski að læra aðeiiiinnns betur á þetta dót.
Svo bíður maður bara spenntur eftir baðkarinu sem verður sett upp eftir áramót, en það mun vera töluvert tæknilegra en sturtan, enda þarf að setja upp 2 rafmagnstengla og læti þar.
Að öðru leiti er allt fínt að frétta......öll krílin eru á jólaballi í dag og fóru af stað voða fín og sparileg í morgun, ýkt spennt yfir að skiptast á pökkum í skólanum. Litla dýrið fær meira að segja pakka í leikskólanum sem jólasveinninn kemur með.
Hann hefur sjaldan verið eins spenntur að fara í leikskólann. Venjulega segist hann ekki nenna í leikskólann, vill bara kúra heima hjá mömmu. En það var sko ekkert múður í morgun, hann var að fara á jólaball og ætlaði að hitta jólasveininn.
Í gær þegar ég var að svæfa hann þá bað hann mig að kaupa handa sér jólaföt eins og Margrét notaði á skautunum. Ég er mikið að hugsa um að láta það eftir honum. Það gæti meira að segja verið að það væri til eitthvað uppi í skáp síðan Alex var lítill. Spurning samt hvort sá galli passi á svona lítinn stubb sem notar föt nr. 86 ![]()
jæja látum þetta gott heita í bili, mín ætlar að fara að skrifa jólakort. Þið Danmerkurgellur.......það er kannski ekki alveg víst að kortin nái fyrir jól..enda var víst síðasti skiladagur 14 des. Mín er alltaf svo tímanlega í hlutunum
Leiðbeiningar aftan á þekktri "meik" tegund: "Do not use on children under 6 months old." (auðvitað byrjar maður ekki að mála börnin sín fyrr en þau eru orðin 7 mánaða!!!)
Leiðbeiningar á Sears hárblásurum: "Do not use while sleeping" (Einmitt þegar mér finnst skemmtilegast að dúlla í hárinu á mér)
Þetta stóð á umbúðum utan af Dial sápu: "Use like regular soap" (Og hvernig á aftur að nota svoleiðis?)
Á umbúðum af SWANN frystimat: "Serving suggestion: Defrost" (Mundu samt...þetta er bara uppástunga)
Hótel lét baðhettu í boxi fylgja með hverju herbergi, og á boxinu stóð: "Fits one head." (Sérðu ekki fyrir þér...einhverja tvo vitleysinga... með eina baðhettu...)
Á botninum af Tiramisu dessertinum frá Tesco stendur: "Do not turn upside down." (Úps, of sein)
Þetta stendur á búðing frá Marks & Spencer: "Product will be hot after heating." (Það er nefnilega það)
Á pakkningum af Rowenta straujárni: "Do not iron clothes on body." (En myndi það nú ekki spara mikinn tíma!)
Á hóstameðali fyrir börn frá Boots: "Do not drive car or operate machinery" (Þannig að Gunni litli fær ekkert að leika sér á lyftaranum þegar hann kemur heim)
Á flösku af "Nytol sleep aid" má sjá þetta: "Warning: may cause drowsiness" (Maður skyldi nú rétt vona það!)
Hnífasett frá Kóreu var merkt þannig: "Warning keep OUT OF children" (okí dókí!!!)
Jólasería frá Kína var merkt á eftirfarandi hátt: "For indoor or outdoor use only" (En ekki hvar...???)
Matvinnsluvél frá Japan var merkt svona: "Not to be used for the other use." (Ok...núna er ég orðinn mjög forvitin)
Hnetupoki frá Sainsburys: "Warning: contains nuts" (Jamm... ég fer mjög varlega)
Á poka af hnetum frá Amerísku flugfélagi stóð þetta: "Instructions: open packet, eat nuts" (Imbafrítt eða hvað?)
Leiðbeiningar sem voru á miða með blá, hvít og rauðköflóttri skyrtu segir: "Munið að þvo liti aðskilda" (Ehhh...já...áttu nokkuð skæri)
Leiðbeiningar á ónefndri örbylgjupopptegund segir manni að "taka plastið af áður en sett er í örbylgju" (Málið er, að til að geta lesið leiðbeingarnar verður þú að vera búinn að taka plastið af og fletta pokanum í sundur...)
Framan á kassa af "Töfradóti" fyrir krakka, er mynd af strák sem er klæddur eins og töframaður. Aftan á kassanum stendur: "Notice, the little boy is not included" (Ohhhhh.......ég sem var farin að hlakka svo til að eignast vin)
Ég keypti svona kisunammi fyrir köttinn minn. Á pokanum stendur "new and improved shapes" (Aaaa...einmitt það sem kötturinn minn er búinn að vera að nöldra út af)
Lítill miði var festur á "Superman" búning, á honum stóð: "Warning: This cape will not make you fly" (Núúúúú...þá kaupi ég hann ekki)
Á keðjusögum stendur oft viðvörunin "Do NOT touch the rotating chain" (Er það ekki nú nokkuð ljóst..haaaa??)
Eitt sem ég skil ekki "Waterproof" maskarar...á þeim stendur: >"Washes off easily with water" (Hmmm...hver er þá tilgangurinn?)
Ég hef verið voða löt að blogga......og líka bara tímalaus.
Ég er mjög hlynt svona kósý jólakvöldum með krökkunum og alveg á því að foreldrar eigi að fylgja börnum sínum á svona viðburði.
En vá ég er að verða uppgefin, núna eru 6 atburðir búinir og allavega 5 eftir........þetta er ekkert voða kósý lengur þetta þetta er svona mikið. Mér hefur ekki tekist í þessari viku að eiga eitt einasta kvöld heima í rólegheitum, því að eina kvöldið sem ekki var uppbókað varð ég að nota í að versla jólagjafir sem eiga að fara norður í dag.
Ég hef svo sem aldrei tekið eftir þessu áður eða fundist þetta mikið mál, enda hef ég aldrei verið að vinna svona lengi frameftir, en þegar maður vinnur til 5 og er síðan að mæta í svona uppákomur eftir það og um helgar líka þá er engin tími efti. Ég hef ekki einu sinni náð að skreyta hjá mér........hvað þá gera aðventukrans.
Jú mér tókst að baka örlítið áður en öll þessi dagskrá byrjaði ;)
......sorry varð bara að pústa smá......er orðin virkilega þreytt mamma sem er hætt að dæma foreldra sem láta sig vanta á einn og einn atburð hjá börnunum sínum......þó svo að ég geti eiginlega ekki hugsað mér það sjálf.
Mig er líka mikið búið að langa að kíkja í kirkjugarðinn þessa vikuna.......en það verður víst að bíða vegna tímaleysis.......á hverju ári ætla ég að taka mig saman í andlitinu og vera sterk og í jólaskapi þessa fyrstu viku í desember........og á hverju ári mistekst það. Kannski það komi næst.
Minningarnar eru bara svo fljótar að koma......ég leyfði mér að kíkja á fótaförin hans Bjarts á afmælisdaginn hans á þriðjudaginn, og komst að því að ég var næstum búin að gleyma hvað hafði svakalega litlar og fullkomnar tær. Svo var litla prinsessan mín svo sæt í sér að teikna mynd handa honum, sem við ætlum að plasta og fara með upp í kirkjugarð. Ég vona að við komumst í það á sunnudaginn.
Svo vona ég að jólaskapið komi aftur fljótlega. Ég hélt að þetta myndi verða auðveldara í ár, og var nú komin í soldið jólaskap í endan nóvember :)......en svona er þetta. Þetta er líka fysta árið sem ég hef ekki próflestur til að dreifa huganum..........ekki það að mig langi sérstaklega í próflestur, ég á víst eftir að fá nóg af honum á næstu árum.
Að lokum sendi ég með link á einn atburðinn :). Litla prinsessan var að sínar listir sínar á Ingólfstorgi í gær og þeir hjá RÚV mynduðu þennan líka flotta snúning hjá henni. Hún er reyndar bara alveg í lok fréttarinnar á eftir hokkýstrákunum
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4284829/7